Múffur sem geta hentað öllum


Ég gerði mér mjólkurlausar múffur og heppnaðist miklu betur en ég leyfði mér að vona. Ef ég hefði gert þær alfarið fyrir mig myndi ég sjálf velja að hafa þær einnig glúteinlausar og sykurlausar þó svo engin fleiri óþol eru á mínu heimili. Ég hinsvegar ákvað að hafa þær í óhollari kanntinum til þess að dekra hina á heimilinu þar sem þetta er líka fyrsta uppskriftin sem ég er að gera í þessu námi og það er ákveðinn sigur fyrir mig að leggja af stað í þetta ferðalag og því vert að hafa hann smá trít.

Múffurnar bragðast dásamlega þrátt fyrir það að ég gat ekki notað bragðbætt jógúrt eins og upprunalega uppskriftin mældi með, heldur notaði ég bragðlaust hafrajógúrt. Áferðin var dásamleg, mjúk og létt og auðveldlega bráðnar í munninum eins og múffur eiga að gera. Einnig urðu þær almennilega ‘krispy’ efst ef ég má taka svoleiðis til orða, en þannig vil ég einmitt hafa múffur, svona til þess að auðvelt sé að brjóta þær niður með einni hendi þegar maður er td. að læra og vill fá sér bita.

Það var skemmtilegt hvað það leit alls ekki út fyrir að vera neitt öðruvísi en upprunlega uppskriftin en þessi mjólkurlausa útgáfa fékk fallegt útlit, þær lyftu sér vel og súkkulaðið var svo sjáanlegt í sprungunum að maður fékk alveg vatn í munninn við það eitt að sjá þær, svo ekki má gleyma að nefna hversu vel öll íbúðin ylmaði meðan múffurnar voru í ofninum.

Þetta eru alveg svona múffa sem maður á erfitt með að hætta að borða, sem auðvitað þýðir einfaldlega að þær eru mjög góðar og ég hlakka til að gefa dætrum mínum.

Mín nútímavædda útfærsla af uppskriftinni er eftirfarandi en ég feiletraði það sem ég kaus að nota sjálf þ.a.m. vegna mjólkuróþols en ég setti hana upp svo hún getur hentað þeim sem vilja getað valið á milli glúteinlausra, sykurlausra og mjólkurlausra innihaldsefna og ætti því að hentað öllum.

Múffur:

  • 300 g/5 dl   hveiti
  • 2½ tsk   lyftiduft
  • ½ tsk   matarsódi
  • 1/8 tsk   salt
  • 125 g   smjör/smjörlíki
  • 80 g /tæpur 1 dl   sykur
  • 1 dós /tæpir 2 dl   jógúrt /hafra- eða sojajógúrt
  • 2   egg
  • 1 dl   mjólk /soja-, hafra-, möndlu-, eða rísmjólk
  • ½ tsk   vanilludropar
  • 100 g   suðusúkkulaði

 

Aðferð


  1. Hitið ofninn í 190°C og styllið á blástur.
  2. Setjið 12 pappírsmúffur í múffuformin.
  3. Náið í tvær skálar.
  4. Sigtið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt saman í fyrstu skálina (sem er ekki undan hrærivélinni) og blandið því vel saman.
  5. Myljið síðan smjörið saman við þar til það líkist brauðmylsnu.
  6. Setjið sykurinn út í og hrærið.
  7. Mælið jógúrtina og mjólkina útí seinni skálina (undan hrærivélinni).
  8. Bætið vanillu dropunum við.
  9. Brjótið eggin í sér litla skál (til að fá ekki skurn í allt saman) og bætið eggjunum svo við og hrærið vel saman.
  10. Setjið síðan þurrefnin saman við það sem er nú í hrærivélaskálinni og hrærið lauslega saman.
  11. Takið suðusúkkulaði úr pakkningunni og sakkið í spænir (ef það er keypt saxað þá sleppiði þessi skrefi)
  12. Bætið súkkulaðikurlinu út í og hrærið aftur lauslega. Passið að ofhræra ekki þá verða múffurnar seigar.
  13. Skiptið deiginu jafnt í 12 múffuform og bakið á næst neðstu rim í um 18 mínútur.
  14. Takið síðan múffurnar úr stærri forminu og látið þær kólna á grind.

 

Best er að baka múffur í sérstökum múffuformum úr járni, áli eða sílikoni og klæða þau að innan pappírsmúffuformum. Þegar þær eru bakaðar er best að taka þær sem fyrst úr

járnforminu (ekki pappírsformunum) og kæla þær á grind til að þær verði ekki rakar að innan.

Þetta á ekki við um múffur með blautri miðju, það er betra að þær bíði í nokkrar mínútur áður en þær eru teknar úr járnforminu.










    






Njótið!