Um mig

This image has an empty alt attribute; its file name is screen-shot-2020-08-28-at-12.11.42-pm.png

Komiði sæl. Ég heiti Eygló Hlín Guðlaugsdóttir og er höfundur þessarar síðu Heil og sæt. Það er ekki annað í boði en að láta vita hver þetta er sem ætlar að fara deila með ykkur efni til kennslu Heilsu og Heimilisfræði.

Ég er 26 ára fyrsta árs kennaranemi og stunda mitt nám hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Það er ýmislegt sem ég hef lært í gegnum mína skólagöngu en ég hef einhvernveginn alltaf stemt að því að verða einhverskonar kennari. Þá fyrst langaði mig að verða myndlistakennari, því í grunnslóla hafði ég svo gaman af því að teikna og lita. Svo fór ég að raða playmo dótinu mínu svo mikið og elskaði að endurraða herberginu mínu svo ég ætlaði mér að fara í arkitektinn. Fór þá að læra Tækniteiknun við Iðnskólann í Reykjavík, en það olli mér vonbrigðum á því að hefta hugmyndaflugið mitt. Þá snéri ég mér að Hönnun og listnámsbrautinni þar og hafði mikið gaman af. Eftir útskrift komst ég inn í háskóla í Bournemouth í Fine Art nám en þar entist ég ekki lengur en fyrsta árið því eitthvað vantaði. Þegar ég kom heim fann ég mig mikið hallast af heimspeki svo ég skellti mér í það og hafði mjög gaman af og auðvitað langaði þá að stefna í heimspekikennarann. En aftur fann ég mig missa áhugann á efninu meðan ég var svo mikið í ræktinni, eldandi hollan mat og finna upp hollar uppskriftir meðan ég las mig til um næringarfræði. Á þessum tíma hafði ég tekið sjálfa mig mikið í gegn í mataræðinu og lífstílnum alfarið og grennst heilmikið. Þá kom að því að ég ákvað að skoða þessa heilsu braut frekar og rakst ég þá á Heilnæma Heilsumarkþjálfun. Ég hikaði ekki við það, þetta var einmitt það sem mig vantaði, á meðan náminu stóð vann ég í Heilsuhúsinu í Kringlunni og elskaði að hjálpa fólkinu. Ég fór að kynnast menningunni í tengslum við heilsufar almúgans og lesa mig að auki til um okkar heilsu á Íslandi og þetta gaf mér soldið spark í rassinn. Það sem meikaði mest sens fyrir mér var auðvitað að fyrirbyggja, þá á ég við, að einstaklingur ætti ekki að óvitandi raska sinni heilsu og seinna læra að hans matarvenjur eða partur af rútínu hafi smátt og smátt verið honum heilsuspillandi og með tímanum komið í bakið á honum sem mikill kostnaður, á heilsunni og peningum til að bæta heilsuna.


Ég sá það skýrt að það þarf að upplýsa almenning af því sem heilsuspillandi og því sem er heilsubætandi sem fyrst. Því fyrr, því betra, og það leyddi mig til krakkanna. Því fyrr sem einstaklingur lærir að hugsa vel um sína heilsu, því meiri líkur eru á því að sá einstaklingur lifir góðu og heilsusamlegu lífi. Það kemur ekki einungis upp á kostnað hans, heldur einnig ríkinu. Því fleiri heilbrigðir einstaklingar í samfélaginu, því færri sjúklingar. Flestir sjúkdómar í dag eru lífsstílssjúkdómar. Heilsuefling og heimilisfræði kennir krökkum í grunnskólum ekki einungis að elda og baka, heldur líka hvað er hollt fyrir þeirra líkama og hreysti. Allir krakkar vilja geta hlupið um og leikið sér með hinum. Sumir stunda krefjandi íþróttir, aðrir hafa mikinn áhuga á lærdómi. Allir krakkar stefna langt í lífinu og það er á okkar ábyrð, foreldra og kennara, að upplýsa okkar börn og nemendur, um það hvernig er best að lifa til þess að ná eins langt og þau ætla sér, á heilbrigðum nótum.